Níels Thibaud Girerd

actor and director

NIELS - PETUR

Níels Thibaud Girerd er leikari og sviðslistamaður sem lauk BA gráðu frá Leikarabraut Sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands árið 2021. Fyrir það hafði hann tekið þátt í allskonar leik-og sviðslistatengdum verkefnum auk dagskrárgerðar og farmleiðslu. Níels starfaði hjá Morgunblaðinu og 365 miðlum frá árunum 2010 - 2015 og kom að yfir 100 þáttum fyrir vef og sjónvarp. Á árunum 2020 - 2021 framleiddi og leikstýrði Níels þáttunum ,,Óperuminning” sem var samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og RÚV í tilefni 40 ára afmælis Íslensku óperunnar.

Á árunum 2015 - 2017 starfaði Níels sem sýningarstjóri og aðstoðarleikstjóri við Íslensku óperuna, kom hann meðal annars að sýningunum á borð við Mannsröddina, Évgení Ónegin sem tilnefnd var til Grímunnar sem sýning ársins 2017, Toscu og Brothers. Auk þess hefur Níels leikstýrt óperunum Rabbi Rafmagnsheili eftir Þorleik Sigurbjörnsson og Örlagaþráðum fyrir Íslensku óperuna. Meðal annarra leikstjórnarverkefna Níelsar má nefna helst sönleikinn Syngjandi í rigningunni sem sýndur var í Víðistaðaskóla árið 2023 og West Side Story árið 2024. Níels lék með Ásthildi Úu Sigurðardóttur í Stundinni okkar fyrir Ríkissjónvarpið en það sjónvarpsefni var tilnefnt í flokki Barna- og unglingaefnis ársins á Eddunni 2022. Níels frumsýndi árið 2025 leiksýninguna Níels er Napóleon í Hannesarholti.