Dýravísur - skólasýningar

Garðabær · þri 29. okt
dýravísur

Dýravísur er lítið tónleikhús sem skapað er úr söngtónlist Jónasar Ingimundarsonar. Verkefnið varð til í samstarfi Kammeróperunnar við leikstjórann David Chocron fyrir BIG BANG, tónlistarhátíð fyrir börn, í Hörðu árið 2023. Í gegnum tónlistina kynnast börnin íslenskum fuglum og hestum en þau eru líkt og mannfólkið að bíða eftir sumrinu. Þegar það svo loksins kemur flýgur það hjá áður en við vitum af. Verkefnið er skapað til þess að gleðja en sama tíma fræða börn um náttúruna. 

Vinsamlegast athugið að um lokaðar skólasýningar er að ræða.

Flytjendur:

Eggert Reginn Kjartansson, tenór
Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran
Kristín Sveinsdóttir, mezzósópran
Unnsteinn Árnason, bassi
Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó


Leikstjórn: David Chocron
Leikgerð: Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Búningar og sviðsmynd: Sólveig Spilliaert

Styrktar- og samstarfsaðilar