Söngflæði

Hörpuhorn · lau 2. nóv kl. 15:00
Söngflæði

Söngflæði með Sólrúnu Bragadóttur í Hörpuhorni. Aðgangur er ókeypis.

Óperutónaflæði Sólrúnar hefur þróast og vaxið síðustu 23 ár

Þar sem ég leik mér með röddina, spinn á staðnum og fylgi innsæinu

Læt röddina ráða og andrúmsloft staðarins veita innblástur

Ég syng án orða; laga - og aríubúta, skreyti og breyti og leyfi tónum að flæða að vild.  Njótendur sitja með lokuð augun, vítt og dreift um salinn og ég geng um og syng

Tilgangurinn er að syngja inn í hjörtu og hvíla heilann í að analýsera

Róa hugsanir, slaka á taugakerfinu og leyfa líkamanum öllum að taka á móti tíðnibylgjunum

Þátttakendur

Styrktar- og samstarfsaðilar