sun, 5. jún 2016
Lokatónleikar Óperudaga
30"
:class="scrolled ? 'opacity-0 pointer-events-none' : 'opacity-100'">
Meira
Lokatónleikar Óperudaga í Kópavogi verða haldnir í Salnum, Kópavogi. Þar verður flutt brot af því besta af hátíðinni og fólk hvatt til að fjölmenna. Meðal verka sem flutt verða má nefna Kaffikantötuna eftir J. S. Bach í íslenskri þýðingu, FótboltaÓperu eftir Helga R. Ingvarsson og brot úr sýningunum Selshamurinn og Poppea Remixed.
Ókeypis er inn á alla viðburði nema hádegistónleikana en vegna takmarkaðs miðaframboðs er mælt með að áhugasamir tryggi sér miða með því að senda tölvupóst á operudagar@operudagar.is ásamt nafni, síma og fjölda miða sem óskað er eftir.
Öllum er velkomið að mæta á staðinn án þess að hafa pantað miða en þá er ekki hægt að tryggja að enn séu til lausir miðar.