ÓPERUDAGAR
Fljótandi dívan
Stapalaug | lau, 24. okt 2026 kl. 13:00
Stapalaug | lau, 24. okt 2026 kl. 14:00
Reykjavíkurtjörn | sun, 25. okt 2026 kl. 13:15
Árbæjarlaug | mán, 26. okt 2026 kl. 19:45
Árbæjarlaug | mán, 26. okt 2026 kl. 21:00
Álftaneslaug | þri, 27. okt 2026 kl. 19:00
Álftaneslaug | þri, 27. okt 2026 kl. 20:30

Fljótandi dívan

Ókeypis aðgangur
Lengd 15 mín.
Verð Ókeypis aðgangur

Er hún draumsýn, villuráfandi vofa eða sírena sem rís úr djúpinu?

Tignarleg sópransöngkona svífur á vatninu í risavöxnum kjól úr regnhlífum og syngur gullfallegar aríur. Tveir dularfullir vatnaþjónar leiða hana hægt áfram á meðan söngurinn berst til áhorfenda.

Fljótandi dívan er töfrandi tónlistar- og sjónarspil eftir hollensku listakonuna Victorine Pasman, sem á bæði hugmyndina og búningahönnunina. Verkið sækir innblástur í 17. aldar klæðnað, hollenskt landslag og sögur af hafmeyjum og skipbrotnum konum – einhvers staðar á mörkum óperu, myndlistar og draums.

Þegar rökkvar lýsist búningurinn upp og dívan verður að flöktandi, svífandi ljósveru.

Dívan mun fljóta á nokkrum stöðum í borginni á Óperudögum, nánari upplýsingar um tíma og stað birtast hér von bráðar.