ÓPERUDAGAR
Árni Heiðar Karlsson

Listafólk Óperudaga

Árni Heiðar Karlsson

Píanóleikari

Árni Heiðar Karlsson á fjölbreyttan feril að baki í íslensku tónlistarlífi síðustu 30 ár sem píanóleikari, tónhöfundur og stjórnandi. Hann lauk mastersgráðu í klassískum píanóleik frá College-Conservatory of Music í Cincinnati og stundaði einnig framhaldsnám í jasspíanóleik í Amsterdam Conservatory of Music. Hann hefur komið fram sem einleikari og meðleikari með söngvurum og hljóðfæraleikurum, verið ráðinn meðleikari í Óperuhúsinu í Wiesbaden, Listaháskóla Íslands og Söngskóla Sigurðar Demetz, og spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands á nokkrum tónleikum. Auk þess hefur hann samið og leikið tónlist í leikritum í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og ýmsum kvikmyndaverkefnum.

Samstarf Gissurar Páls og Árna Heiðars spannar nær tvo áratugi og hafa þeir komið fram víða gefið frá sér tvær plötur, Bella Napoli, og Við nyrstu voga sem innihalda sönglög frá Ítalíu og Íslandi.

Deila prófíl

Myndasafn

Myndir

árni heiðar

árni heiðar