Listafólk Óperudaga
Eydís Franzdóttir
Óbóleikari
Eydís Franzdóttir óbóleikari, útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1987 þar sem hún lærði óbóleik hjá Kristjáni Þ. Stephensen, en stundaði eftir það óbónám í London hjá Michael Winfield og Gordon Hunt. Að námi loknu lék hún með sam-evrópsku hljómsveitinni Acadya í Frakklandi og var svo ráðin 1. óbóleikari tékknesku útvarpshljómsveitarinnar í Plzen, Tékklandi. Eydís hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi um áraraðir m.a. sem óbóleikari Caput-hópsins frá stofnun hópsins, meðlimur í blásaraoktettinum Hnúkaþey, í kvartettinum Dísunum, leikur oft með kammerhópnum Camerarctica, PiKap strengjakvartettinum í Tékklandi, Musica ad Gaudium í Tékklandi og fleiri kammerhópum. Eydís hefur jafnframt leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljómsveit Íslensku óperunnar og fleiri íslenskum hljómsveitum. Eydís hefur verið frumkvöðull í flutningi nútímatónlistar fyrir óbó og hefur óbóleikur hennar verið hvatning fyrir mörg tónskáld bæði íslensk og erlend, til að semja fyrir óbóið sem einleikshljóðfæri. Eydís hefur komið fram sem einleikari og með öðrum á tónlistarhátíðum víða um lönd bæði í Evrópu og vestan hafs.
Deila prófíl
Óperudagar 2026
Tekur þátt í
Myndasafn
Myndir
Eydís