Listafólk Óperudaga
Margrét Arnardóttir
Harmónikkuleikari
Margrét Arnardóttir lagði grunninn hjá einkakennara sínum, Karli Jónatanssyni, og bætti síðar við sig formlegu námi við tónlistarskóla Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH), bæði í klassískri og rytmískri deild, blanda sem hefur mótað sérstakan stíl sem hún er þekkt fyrir í íslensku tónlistarlífi.
Margrét hefur um árabil verið meðal virkustu hljóðfæraleikara landsins. Hún hefur komið fram með fjölda hljómsveita og tónlistarfólks úr ólíkum áttum íslensks tónlistarlífs, auk þess að leika inn á fjölda hljómplatna.
Samhliða tónleikahaldi hefur Margrét tekið þátt í að semja og flytja tónlist fyrir sviðslistir, kvikmyndir og sjónvarpsefni. Hún hefur flutt tónlist sína víða um heim, meðal annars í Grænlandi, Japan og í Tívolíinu í Kaupmannahöfn, þar sem hún lék á íslenska þjóðhátíðardaginn.
Deila prófíl
Óperudagar 2026