Listafólk Óperudaga
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Mezzósópran
Sigríður Aðalsteinsdóttir lauk 8. stigi frá
Söngskólanum í Reykjavík 1994 og burtfararprófi frá sama skóla 1995.
Aðalkennari hennar við skólann var Elísabet F. Eiríksdóttir. Haustið 1995 hóf
hún nám í óperudeild Tónlistarskólans í Vínarborg og ári síðar hóf hún nám við
óperudeild Tónlistarháskólans í Vínarborg þaðan sem hún lauk námi árið 2000 með
hæstu einkunn. Sigríður lauk kennaranámi til kennsluréttinda frá KÍ 2004 og meistarnámi
í stjórnun frá HÍ 2013. Sigríður hefur starfað sem söngkennari frá árinu 2002
bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Sigríður hóf söngferil sinn í Þjóðaróperunni í Vínarborg árið 1997 þá enn við
nám í tónlistarháskólanum. Hún var síðan lausráðin einsöngvari við
Þjóðaróperuna til ársins 2002. Hún söng ýmis hlutverk við húsið, m.a. þriðju
dömu í Töfraflautunni, Fjodor í Boris Godunow og Mercedes í Carmen. Á Íslandi
hefur hún sungið hlutverk Zitu í Gianni Schicci með Norðurópi, þriðju dömu í Töfraflautunni, Marcellinu í
Brúðkaupi Fígarós, Mother Goose í Rake’s Progress og Lolu í Cavalleria
Rusticana og ýmis hlutverk í Óperuperlum hjá Íslensku óperunni. Hún hefur
haldið fjölda ljóðatónleika og komið fram sem einsöngvari með ýmsum kórum og
hljómsveitum, m.a. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Sinfóníuhlómsveit unga fólksins.
Deila prófíl
Saga