Tinna Þorsteinsdóttir

píanóleikari

Tinna

Tinna Þorsteinsdóttir er píanóleikari með víðtæka reynslu á sviði nýrrar tónlistar og hefur frumflutt um 100 einleiksverk sem samin hafa verið fyrir hana í gegnum tíðina. Hún vinnur náið með íslenskum tónskáldum og hefur verið liðtæk í tilraunartónlistarsenunni á Íslandi og víðar í gegnum tíðina. Hún hefur haldið fjölda einleikstónleika hérlendis og um víðan völl. Tinna hefur leikið píanóverk eftir og með listamönnum eins og Helmut Lachenmann, Alvin Lucier, Christian Wolff, Peter Ablinger, Morton Subotnick, Cory Arcangel og Mme Yvonne Loriod-Messiaen.

Hún hlaut Menningarverðlaun DV í flokki tónlistar árið 2013.

Styrktar- og samstarfsaðilar