Listafólk Óperudaga
Victorine Pasman
Victorine Pasman er hollensk sviðslistakona sem skapar heillandi gjörninga og grípandi búninga þar sem hreyfing, húmor og samspil við áhorfendur gegna lykilhlutverki. Hún fæst meðal annars við götuleikhús í margra metra háum kjólum og sýningar þar sem stórbrotnir búningar fljóta á vatni. Sýningar hennar hafa heillað áhorfendur með leikandi léttleika þar sem þeim er boðið inn í undraverðan heim. Úr verður spennandi upplifun sem varpar nýju ljósi á hversdagsleikann og fangar hugann. Hugmyndir hennar lifna við í samstarfi við annað sviðslistafólk, dansara og tónlistarfólk, í almannarými, úti í náttúrunni og meðal áhorfenda. Sýningarnar fara fram á söfnum, á leiklistar- og listahátíðum og á ýmsum menningarviðburðum.
Verk hennar hafa verið sýnd á stórum hátíðum og menningarviðburðum í Hollandi, meðal annars á Lowlands, Oerol, Solar Weekend Festival, Boekenbal, Gergiev Festival og tískuvikunni í Amsterdam. Á alþjóðlegum sýningarferli sínum hefur Victorine meðal annars unnið í Odegand í Gent í Belgíu, við götuleikhúshátíðina Olala í Lienz í Austurríki, Music for Sunset á Ítalíu, Festival de Musique du Périgord Noir í Frakklandi og Musikfestspiele Sanssouci í Potsdam í Þýskalandi.
Hlekkir og samfélagsmiðlar
Deila prófíl