Masterklass með Gittu-Mariu Sjöberg

Norræna húsið · mið 31. okt kl. 10:00
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar · fim 1. nóv kl. 10:00
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar · fös 2. nóv kl. 10:00
Gitta-Maria Sjöberg

Þriggja daga masterklass með Gittu-Mariu Sjöberg sópransöngkonu og formanni Birgit Nilsson félagsins í Svíþjóð fer fram dagana 31.10, 1.11. og 2.11, kl 10:00 – 13:00 og 14:00 – 16:00.

Námskeiðið hentar langt komnum nemendum og atvinnusöngvurum. Á hverjum degi byrjar hún á léttri upphitun og æfingum með söngvurunum. Gerrit Schuil leikur undir á píanó.

Þátttökugjald er aðeins 20.000 kr á hvern þátttakanda, niðurgreitt af Óperudögum.

Skráning er til 10. október á operudagar@operudagar.is en aðeins átta söngvarar komast að. 

Námskeiðinu lýkur með tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þar sem þátttakendur koma fram ásamt Gittu-Mariu.

Námskeiðið er opið áheyrendum og er aðgangur ókeypis.

31. október: Norræna húsið

1. nóvember: Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

2. nóvember: Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Gitta-Maria Sjöberg sópransöngkona hefur átt farsælan feril víða um heim. Hún syngur bæði lýrísk og dramatísk óperuhlutverk en hún hefur sungið hlutverk eins og Tosca, Madame Butterfly, Mimi, Desdemona, Amelia, Leonora, Arabella, Sieglinde, Brangaene, Rusalka, Katarina Ismailova, Kostelnicka og Emilia Marty.

Túlkun Gittu-Mariu á hlutverkum Emiliu Marty í Vec Makropulos og Kostelnicku í Jenufa eftir Janacek sem og hlutverki móðurinnar í heimsfrumflutningi óperunnar Silent Zone eftir Louise Alenius hafa hlotið sérstaklega mikið lof. Uppfærsla Vec Makropulos á Janacek festivalinu í Brno hlaut verðlaunin Besta óperusýning ársins í Tékklandi 2014.
Gitta-Maria hefur einnig komið fram á tónleikum um alla Evrópu, í Rússlandi og Japan og hún sýnir mismunandi tónlistarstílum, hvort sem það eru sönglög eftir Schubert, þjóðlög eða jazzballöður, sömu orku og alúð.

Gitta-Maria er listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Nordic Song Festival sem hún stofnaði sumarið 2014 út frá áhuga sínum á ljóðasöng og naut hátíðin mikillar velgengni strax frá upphafi. Á dagskrá hátíðarinnar eru masterklassar, tónleikar og listræn rannsóknarverkefni. Hátíðin hefur vaxið og blómstrað og verður haldin 9. – 17. ágúst 2019 í Trollhättan, Svíþjóð.

Vorið 2019 kemur út ný plata þar sem Gitta-María flytur rússnesk og dönsk lög ásamt píanistanum Polinu Fradkinu. Aðrar plötur sem Gitta-Maria hefur sungið inn á eru meðal annars “Verdi & Puccini Arias”, “Nordic Trio: Nordic Folk Songs and Ballads”, “15 Söngvar eftir Gustaf Fröding” og jólaplatan “Nordic Winter - Christmas Songs”.

Gitta-Maria hefur hlotið fjölda verðlauna, m.a. Birgit Nilsson verðlaunin, en síðan 2013 hefur hún sinnt störfum sem stjórnarformaður Birgit Nilsson-félagsins í Svíþjóð.

Margrét II Danadrottning sæmdi hana stórkrossi Dannebrogs-orðunnar árið 2004.

http://www.gittamaria.com
http://www.facebook.com/gittamaria.sjoberg

http://nordicsongfestival.com

Þátttakendur

óperusöngkona/þjálfi

Styrktar- og samstarfsaðilar