Opinn hljóðnemi og lokapartý

Norðurljós, Harpa · sun 29. okt kl. 20:30
openMic_FB

Söngvarar koma sér vel fyrir, taka lagið í afslappaðri stemningu í Norðurljósum og ljúka Óperudögum í ár. Sviðið er opið, barinn opinn og Sigurður Helgi píanisti er til taks fyrir þá sem vilja prufukeyra ljóð, lög, aríur og kabaretta. Aðrir píanistar og hljóðfæraleikarar eru líka velkomnir. Eitt lag á mann ef það er örtröð. Einnig er í boði að segja lygasögur, fara með rímur eða krassandi klámvísur úr óperubransanum. 

Miðasala

Þátttakendur

píanisti

Styrktar- og samstarfsaðilar