Viðburður Óperudagar 2026

Ljóð fyrir framtíðina

Norðurljós · lau 31. okt kl. 11:00
LFF-THOR

Þann 31. október næstkomandi bjóða Óperudagar upp á fjölskylduviðburð á Óperudögum í samstarfi við Hörpa tónlistar- og ráðstefnuhús. Barnakórar og söngvarar flytja ný og eldri verk eftir íslensk og norræn tónskáld við ljóð barna, krakkar lesa upp eigin ljóð og myndverkum þeirra verður varpað upp á skjá meðan á tónlistarflutningnum stendur.

Allir krakkar geta sent okkur ljóð og myndverk í gegnum síðuna okkar. Við leitum sérstaklega að ljóðum og listaverkum sem fjalla um framtíðina, drauma, náttúruna, loftslagið og umhverfið. Hugmyndin er að nota sum ljóðanna og listaverkanna til að semja ný tónverk við og sýna á viðburðinum í Norðurljósum! Öll ljóðin og myndverkin sem berast verða auk þess birt á heimasíðu verkefnisins!