Fréttir • 1. september 2026
NOC og Ragnheiður slá í gegn í Herning
Fréttir •
NOC og Ragnheiður slá í gegn í Herning
Færri komust að en vildu
Færri komust að en vildu
Tónleikar Nordic Opera Choir og Sinfóníuhljómsveitarinnar í Árósum fengu 6 stjörnur og lofsamlega umsögn gagnrýnandans Kurt H Jörgensen í Herning Folkeblad mánudaginn 31. ágúst.
Laugardaginn 31. október kemur kórinn fram ásamt Elju kammersveit í Norðurljósum í Hörpu undir stjórn Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir og flytur sama prógram! Í kórnum eru 30 norrænir söngvarar, þar af 6 íslenskir. Miðasala er hafin.
Í umsögninni í danska dagblaðinu stóð einnig:
Á sviðinu voru um 100 listamenn. Sinfóníuhljómsveitin í Árósum í fullri stærð ásamt Nordic Opera Choir. Og frá fyrsta tóni fylltist salurinn af krafti, fögrum hljómi og titrandi orku.
Stórbrotin kór- og hljómsveitarverk dagskrárinnar nutu sín til fulls – allt frá dramatískum sprengikrafti til ljóðrænnar fegurðar. Sinfóníuhljómsveitin í Árósum lét salinn óma og raddir Nordic Opera Choir fylltu hann af krafti og innileika. Það var eitthvað bæði stórbrotið og viðkvæmt við tónlistina – allt í senn fallegt, magnað og áhrifamikið.
Í hjarta alls þessa stóð hljómsveitarstjórinn Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir full af orku og virtist nánast dansa í gegnum tónlistina. Hún stjórnaði þessum stóra hópi með öllum líkamanum, vökulu auga, eftirtektarverðri músíkalskri næmni og sameinaði kraftana á sviðinu af einstakri léttleika og nákvæmni.
Nordic Opera Choir er samstarfsverkefni Herning Opera Festival, Óperudaga og Nordic Song Festival í Trollhättan í Svíþjóð og var stofnaður að frumkvæði Herning Opera Festival og Den Jyske Sangskole árið 2023. Markmiðið með kórnum er að gefa ungum atvinnusöngvurum og langt komnum háskólanemum í söng tækifæri á að starfa saman við sitt fag, styrkja norræna tengslanetið og fá mikilvæga starfsreynslu. Aðalstyrktaraðili kórsins er A.P Möller-sjóðurinn í Danmörku.