ÓPERUDAGAR
Fyrirlestrartónleikar - hinseginleiki á óperusviðinu
mán, 26. okt

Fyrirlestrartónleikar - hinseginleiki á óperusviðinu

Lengd 1 klst.

Óperusöngkonan Íris Björk Gunnarsdóttir er stofnandi glænýja óperufélagsins hinÓperunnar sem hefur það að markmiði að auka sýnileika hinsegin fólks og sagna á óperusviðinu. Fyrsta stóra verkefni félagsins er óperan 27 eftir Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek sem hinÓperan setur upp í samstarfi við Borgarleikhúsið í haust. Þar segir frá ástarsögu rithöfundarins Gertrude Stein og Alice B. Toklas og litríku listamannasamfélaginu sem varð til í kringum þær í París á fyrri hluta 20. aldar. Íris Björk fer sjálf með hlutverk Gertrude Stein í sýningunni.

Íris Björk er lýrískur sópran og hefur undanfarin ár starfað bæði á Íslandi og í Noregi. Hún lauk mastersnámi frá Óperuháskólanum í Osló árið 2023 og var í kjölfarið ráðin við óperustúdíó Norsku þjóðaróperunnar þar sem hún hefur tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum. Samhliða söngferlinum hefur hún rannsakað hinseginleika á óperusviðinu með sérstaka áherslu á sýnileika hinsegin persóna og sagna í listformi þar sem slíkar raddir hafa lengi verið lítt sýnilegar.

Á þessum fyrirlestrartónleikum nálgast Íris Björk viðfangsefnið á fræðandi, persónulegan og skemmtilegan hátt og veltir meðal annars fyrir sér því hvernig hinseginleiki birtist í óperuheiminum – í sögunum, persónunum og tónlistinni sjálfri. Á milli frásagna og vangaveltna flytur hún valda tónlist úr ylhýrum óperum.

Við píanóið er Matthildur Anna Gísladóttir, píanisti og óperuþjálfi, sem jafnframt er tónlistarstjóri 27. Matthildur lauk meistaranámi í meðleik frá Royal Academy of Music í London og meistaranámi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire of Scotland. Hún hefur komið að fjölda óperuuppsetninga hér heima og erlendis meðal annars hjá Íslensku óperunni, Scottish Opera, British Youth Opera og Óperudögum og starfar jafnframt við kennslu og óperuþjálfun.