ÓPERUDAGAR
Hátíðargala
Harpa – Norðurljós | lau, 31. okt kl. 18:00

Hátíðargala

Kaupa miða
Lengd 1 klst.
Verð 1.500 - 4.500 kr.

Óperudagar bjóða til stórglæsilegra tónleika í flutningi Nordic Opera Choir og kammersveitarinnar Elju undir stjórn Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur. Á efnisskránni er fjölbreytt og kraftmikil dagskrá þar sem hljóma nokkur af þekktustu kóratriðum óperusögunnar, ásamt einsöngsverkum og sjaldgæfari og spennandi perlum.

Áheyrendur fá að upplifa allt frá Kór sígaunanna (Il Trovatore) og Va, pensiero (Nabucco) eftir Verdi, þekktar aríur á borð við Habanera úr Carmen og hinn töfrandi Humming Chorus úr Madama Butterfly. Á dagskránni eru einnig glæsileg verk eftir m.a. Alexander Borodin, Kaiju Saariaho og Helenu Munktell.