ÓPERUDAGAR
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

Listafólk Óperudaga

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

Sópran og hljómsveitarstjóri

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir (f. 2000) var valin „bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023 og tilnefnd sem söngvari og flytjandi ársins 2025.

Hún lauk tvöfaldri bakkalársgráðu í fiðluleik og söng frá Listaháskóla Íslands vorið 2021 og meistaranámi í söng við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi vorið 2023. Hún útskrifaðist úr Malko hljómsveitarstjóraakademíunni í Kaupmannahöfn 2024 og stjórnaði Dönsku þjóðarhljómsveitinni í 4. sinfóníu Mahlers á útskriftartónleikunum. Hún lauk svo námi í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Osló vorið 2026, en veturinn 2024-2025 stundaði hún einnig hljómsveitarstjórnarnám við Royal Academy of Music í London í "Glover-Edwards Conducting Programme".

Ragnheiður söng og stjórnaði kammersveit (samtímis) á tónleikunum „Hvað syngur í stjórnandanum?“ á Óperudögum 2022 og frumflutti þrjú verk, samin fyrir tilefnið. Hún hljóðritaði svo tvö verkanna með Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir RÚV 2024. Hún vann söngkeppnina Vox Domini 2022, söng einsöngshlutverkið í 4. sinfóníu Mahlers með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins 2023 og söng og stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum Ungir einleikarar sama ár. Hún söng verkið „Kafka Fragments“ með fiðluleikaranum Rannveigu Mörtu Sarc á Óperudögum haustið 2023 og söng og stjórnaði meistaraverki Schönbergs, „Pierrot lunaire“, á Óperudögum 2024, auk þess að stjórna tónlistarævintýrinu „Tumi fer til tunglsins“ eftir Jóhann G. Jóhannsson.

Að undanförnu hefur Ragnheiður stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Árósa, SinfoniaNord, Elju kammersveit, Cantoque Ensemble, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Sinfóníuhljómsveit MÍT.

Hún var ráðin stjórnandi Nordic Opera Choir árið 2025 og endurráðin 2026 og stjórnaði kórnum á tónleikum á Nordic Song Festival í Svíþjóð, Herning Opera Festival í Danmörku með Sinfóníuhljómsveit Árósa og á Óperudögum í Reykjavík með Elju kammersveit.

Ragnheiður lauk meistaranámi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst 2024 og hefur unnið sem verkefnastjóri fyrir Óperudaga frá árinu 2022. Hún leikur reglulega á fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennir í Listaháskóla Íslands og Söngskóla Sigurðar Demetz.

Mynd: Dominik Falenski, DR

Hlekkir og samfélagsmiðlar

Deila prófíl

Myndasafn

Myndir

Pierrot lunaire

Pierrot lunaire

Unknown-3

Unknown-3

Hvað syngur í stjórnandanum 2022

Hvað syngur í stjórnandanum 2022

Daðrað við tónlistargyðjuna í 70 ár

Daðrað við tónlistargyðjuna í 70 ár