ÓPERUDAGAR
Kastali Bláskeggs
Harpa – Norðurljós | fös, 30. okt kl. 18:00
Harpa – Norðurljós | sun, 1. nóv kl. 20:00

Kastali Bláskeggs

Tegund Ópera
Tungumál Ungverska
Lengd 1 klst.
Verð 1.900 - 6.500 kr.

Kastali Bláskeggs eftir Bartók í fyrsta sinn á Íslandi - aðeins þessar tvær sýningar!

Hvar er sviðið, áhorfendur góðir? Er það innra með okkur? Eða fyrir utan okkur? 

Í innganginum að Kastala Bláskeggs eru áheyrendur leiddir inn í eitt magnaðasta sálfræðiverk óperusögunnar. Frá upphafi er óljóst hvort kastalinn sé raunverulegur staður eða okkar innra sjálf – rými minninga, þrár, ótta og leyndarmála.

Kastali Bláskeggs fjallar meðal annars um ást, nánd og sannleika. Hversu vel getum við raunverulega þekkt aðra manneskju – og hversu mikinn sannleika þolir ástin?

Judith fylgir nýja eiginmanni sínum, Bláskeggi, inn í myrkan og drungalegan kastala hans þar sem finna má sjö læstar dyr. Judith vill kynnast manninum sem hún elskar og krefst þess að fá lyklana að öllum dyrunum. Þrátt fyrir viðvaranir Bláskeggs opnar hún þær allar, eina af annarri. Við hverjar dyr uppgötvar hún nýja hlið á honum og fortíð hans. Það sem í fyrstu virðist vera leit Judithar að sannleikanum verður smám saman að einhverju óumflýjanlegu: hún getur ekki hætt fyrr en allar dyrnar hafa verið opnaðar.

Bak við dyrnar birtist bæði myrkur og ljós; hryllingur og fegurð. Eftir því sem Judith kemst lengra inn í kastalann verður spurningin áleitnari: Hversu langt eigum við að ganga í leitinni að sannleikanum um manneskjuna sem við elskum?

Hvað geymum við innra með okkur? Hvernig birtist einmanaleikinn? Hversu mikið getur ein manneskja borið áður en eitthvað brestur? Eigum við rétt á að vita öll leyndarmál þeirra sem við elskum?

Meira en hundrað árum eftir að Bartók samdi óperuna við librettó Béla Balázs eiga þessar spurningar enn brýnt erindi við okkur. 

Kastali Bláskeggs verður fluttur í hálfsviðsettri uppfærslu og í snjallri útsetningu Stephen Higgins fyrir sjö manna kammersveit. Higgins þéttir hinn gríðarstóra hljóðheim Bartóks án þess að missa upprunalegu litina sem einkennir verkið. Útsetningin hefur verið flutt víða um heim, meðal annars í London, Edinborg, Toronto og Atlanta, Finnlandi og Kína.

Hollenski leikstjórinn Kenza Koutchoukali leikstýrði Kastala Bláskeggs fyrir Opera Zuid í Hollandi árið 2024 og uppfærsla Óperudaga sækir innblástur í þá uppfærslu, með góðfúslegu leyfi.

Í Kastala Bláskeggs má búast við spennuþrungnum flutningi þar sem raddir, hljóðfæri og rými mætast á rafmagnaðan hátt.