ÓPERUDAGAR
Stephen Higgins

Listafólk Óperudaga

Stephen Higgins

Píanóleikari

Stephen Higgins er breskur hljómsveitarstjóri, tónlistarstjóri, útsetjari og framleiðandi. Hann stundaði nám við Oxford-háskóla, Guildhall School of Music and Drama og National Opera Studio. Hann hóf feril sinn við Konunglega óperuhúsið í London, Glyndebourne og Ensku þjóðaróperuna og hefur síðan stjórnað í Parísaróperunni, Ensku þjóðaróperunni, Velsku þjóðaróperunni, Skosku óperunni og á hátíðum víða um heim.

Higgins er þekktur fyrir að leggja sérstaka rækt við ný verk og hefur stjórnað frumflutningi verka eftir Damon Albarn, Jonathan Dove og fleiri, samhliða því að stjórna sígildum óperuverkum eftir tónskáldum á borð við Mozart og Puccini. Hann er tónlistarstjóri Theatre of Sound og Silent Opera, tveggja félaga sem ryðja nýjar brautir í tónleikhúsi með því að nýta tækni og flétta saman ólík listform. Hann er jafnframt virtur söngþjálfi, vinnur með tónlistarfólki að upptökum og hefur umsjón með tónlist í stórum leikhúsuppfærslum. Hann vinnur um þessar mundir meðal annars að samstarfsverkefni með Jacob Collier sem er innblásið af Pavarotti.

Deila prófíl

Myndasafn

Myndir

Screenshot 2026-09-05 at 23.40.15

Screenshot 2026-09-05 at 23.40.15