Hvað syngur í stjórnandanum?
Sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir heldur tónleika með tólf manna kammersveit í Eldborg í Hörpu á Óperudögum 5. nóvember 2022 kl. 18. Yfirskrift tónleikanna er „Hvað syngur í stjórnandanum?“ og á þeim verða frumflutt þrjú ný íslensk verk, samin sérstaklega fyrir tilefnið, auk aríu Zerbinettu úr óperunni Ariadne auf Naxos eftir Richard Strauss, en í öllum verkunum mun Ragnheiður syngja og stjórna samtímis. Höfundar verkanna þriggja eru Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson og María Huld Markan.
Efnisskrá:
Jóhann G. Jóhannsson: Konsert fyrir kólóratúrsópran og kammersveit (2022), frumflutningur
Texti: William Shakespeare (Ræða Kalíbans úr Ofviðrinu)
I: Be not afeard
II: Ekkert að hræðast - þýðing: Helgi Hálfdanarson
III: Var icke rädd - þýðing: Carl August Hagberg
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir: Fasaskipti (2022), frumflutningur
Ljóð: Þórdís Helgadóttir
María Huld Markan Sigfúsdóttir: Djúpalón (2022), frumflutningur
Ljóð: Þóra Hjörleifsdóttir
Richard Strauss: Großmächtige Prinzessin (1912), aría Zerbinettu úr Ariadne auf Naxos
Texti: Hugo von Hofmannsthal
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði, Tónskáldasjóði RÚV og STEFs og Nótnasjóði STEFs.
MIÐASALA
Þátttakendur
-
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttirsópran og hljómsveitarstjóri
-
Rannveig Marta Sarcfiðluleikari
-
Gunnhildur Daðadóttirfiðluleikari
-
Anna Elísabet Sigurðardóttirvíóluleikari
-
Guðný Jónasdóttirsellóleikari
-
Xun Yangkontrabassaleikari
-
Kristín Ýr Jónsdóttirflautuleikari
-
Julia Hantschelóbóleikari
-
Birkir Örn Hafsteinssonklarinettleikari
-
Bryndís Þórsdóttirfagottleikari
-
Stefán Jón Bernharðssonhornleikari
-
Helga Bryndís Magnúsdóttirpíanóleikari
-
Helgi Þorleikssonslagverksleikari