ÓPERUDAGAR
Raddir rafmagna: Hin magnaða rödd Margrétar
Harpa – Norðurljós | lau, 31. okt 2026 kl. 15:00

Raddir rafmagna: Hin magnaða rödd Margrétar

Lengd 1 klst.
Verð 1.500 - 4.500 kr.

Á tónleikunum Raddir rafmagna fylgja Margrét Hrafnsdóttir og Ástríður Alda konu frá fyrsta vori til síðustu kyrrðar. Leiðin liggur um óperur og ljóð Wagners, Puccinis, Strauss og Mahlers, frá gleði æskunnar og fyrstu ástinni til sorgar móðurinnar, sektar, þráhyggju og einmanaleika. Á leiðinni koma við sögu hásalir, fangaklefar og eyðimerkur. Eftir því sem líður á tónleikana falla grímurnar ein af annarri. Óperuhlutverkin víkja fyrir innri rödd ljóðsins, og í lokin stendur ekkert eftir nema söngurinn sjálfur.

Pálína Jónsdóttir leikstjóri vinnur með þeim að því að teygja á tónleikaforminu, svo úr verður flæðandi tónleikhús þar sem rödd, tónlist og leikur renna saman.