Þórdís Erla Zoëga

Leikmynda- og búningahönnuður

_BIC0895_by_bicnick.jpg

Þórdís Erla Zoëga er myndlistarkona búsett í Reykjavík.  Hún er með BFA gráðu úr Audio Visual deild Gerrit Rietveld Academy í Amsterdam þar sem hún stundaði nám á árunum 2008-2012. Einnig útskrifaðist hún með diplómu í Vefþróun úr Vefskólanum 2017.

Hún hefur sýnt víða t.a.m. í Amsterdam, Stokkhólmi, Berlín, Basel og Tékklandi.

Á Íslandi hefur hún m.a. gert verk fyrir Listahátíð í Reykjavík, Gerðarsafn og sýnt í D-sal Hafnarhússins. 

Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir Búninga ársins 2016 í verkinu DADA Dans sem hún vann í samvinnu við Íslenska Dansflokkinn.

Þórdís gerir verk í hinum ýmsu miðlum sem eru spunnin út frá nánd, symmetríu og jafnvægi.


www.thordiz.net

https://www.instagram.com/thordiserlazoega/

Styrktar- og samstarfsaðilar