Trouble in Tahiti
Sam og Dinah eru fyrirmyndarhjón sem búa í hinni fullkomnu úthverfaparadís. Undir fægðu yfirborðinu leynist þó veruleiki sem er á skjön við markaðsvædda ímyndina. Við fylgjumst með einum degi í lífi þeirra og tvísýnni atburðarás um framtíð hjónabandsins. Verkið er háðsádeiluverk sem endurspeglar poppmenningu 6. áratugarins í Bandaríkjunum og afhjúpar tálsýn ameríska draumins, heim samanburðar og neyslukapphlaups á kostnað ástarinnar.
Trouble in Tahiti verður nú sett upp í fyrsta sinn á Íslandi en tónskáldið Leonard Bernstein hefði orðið 100 ára á árinu. Óperan er aðeins tæp klukkustund að lengd og verður flutt á ensku.
Miðasala hér
Þátttakendur
-
Aron Axel CortesSöngvari
-
Ása Fanney GestsdóttirListrænn stjórnandi og söngkona
-
Gísli Jóhann GrétarssonStjórnandi
-
Hrönn ÞráinsdóttirPíanisti
-
Pálína JónsdóttirLeikstjóri
-
Þórður HallgrímssonTrompetleikari
-
Símon Karl SigurðarsonKlarinettuleikari
-
Sigríður Hjördís IndriðadóttirFlautuleikari
-
Þórdís Erla ZoëgaLeikmynda- og búningahönnuður
-
Ásta Jónína ArnardóttirKvikmyndagerðarkona
-
Auður Bergdís SnorradóttirDanshönnuður
-
Íris Björk GunnarsdóttirSöngkona
-
Tinna Þorvalds ÖnnudóttirSöng- og leikkona