Listafólk Óperudaga
Guja Sandholt
Söngkona
Guja Sandholt býr í Reykjavík og Amsterdam og starfar sem sjálfstætt starfandi söngkona og listrænn stjórnandi Óperudaga. Á undanförnum árum hefur hún komið víða fram í Hollandi og víðar, m.a. í Concertgebouw í Amsterdam, Fílharmóníunum í París, Lúxemborg og Hong Kong; Hörpu og á Grachtenfestival, Holland Festival, Reykholtshátíð og Óperudögum. Nýlega söng hún hlutverk Leonore í uppfærslu Óperudaga á Fidelio-atlaga að óperu eftir Beethoven í leikgerð Bjarna Thors Kristinssonar; Juliu Child í súkkulaðikökuóperunni Bon Appétit! eftir Lee Hoiby á Íslandi; hlutverk söngvara í leikgerð Albertar Hoex á Mattheusi unga og Popovu í The Bear eftir William Walton. Sumarið 2019 stóð hún fyrir íslenskum frumflutningi á víkingaóperunni King Harald's Saga eftir Judith Weir og var í kjölfarið tilnefnd sem Söngkona ársins í sígildum flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Guja hefur víða komið fram sem einsöngvari í flutningi á óratoríum á borð við Mattheusarpassíuna og Jólaóratoríuna eftir J.S.Bach, Requiem eftir Verdi, Mozart og Duruflé, Stabat mater eftir Dvorak, Pergolesi og Arvo Pärt, Messías eftir Handel, Gloriu eftir Vivaldi og Messu í C eftir Beethoven. Hún syngur einnig reglulega með Hollenska útvarpskórnum þar sem hún gegnir hálfri stöðu. Auk þess kemur vinnur hún reglulega með Heleen Vegter, ljóðapíanista. Árið 2013 fór hún sem styrkþegi Wagner-félagsins til Bayreuth í Þýskalandi og á árunum 2011-2012 starfaði hún fyrir eistneska tónskáldið Arvo Pärt og fjölskyldu hans um hríð. Guja hefur hlotið listamannalaun frá Launasjóði listamanna nokkrum sinnum.
Guja stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, Guildhall School of Music and Drama í London, Mozarteum tónlistarháskólann í Salzburg og Konservatoríið í Utrecht í Hollandi. Kennarar hennar í Hollandi voru Jón Þorsteinsson tenór og söngkennari við Konservatoríið í Utrecht og Charlotte Margiono sópransöngkona. Frá árinu 2017 hefur hún sótt einkatíma hjá Stephanie Doll í Düsseldorf.
Nú til dags hefur Guja mikinn áhuga á að fást við fjölbreytt verkefni með áherslu á tónlist og samfélagsleg gildi. Þess vegna hafa Óperudagar verið dýrmætt tækifæri til að kanna nýjar söngslóðir á Íslandi og um leið mynda þéttan kjarna af fólki með svipaðar ástríður og markmið.
www.gujasandholt.com
Hlekkir og samfélagsmiðlar
Óperudagar 2026
Tekur þátt í
Saga
Þáttaka á fyrri hátíðum
LJÓÐ FYRIR LOFTSLAGIÐ
MOZART REQUIEM SINGALONG
FIDELIO - ATLAGA AÐ ÓPERU
Súkkulaðikökuóperan
Málþing Óperudaga 2020
Wagnerraddir - hátíðartónleikar
ÓPERUPARTÝ
Little Match Girl Passion & Death speaks
Harpa syngur - Lokahátíð 2022
Ríkharður III - ópera í smíðum
Eftir nóttina
Mattheus ungi
Daglegt líf
Element - kjörnun fyrir kvöldmat!
The Little Match Girl Passion
Brot úr As one
Óperubrölt
Poppea Remixed
Glymskrattinn - fjölskyldutónleikar
Ljóðaspjall og -söngur
Hrikalegur Händel
Opnun Ljóðadaga - Tónleikar fyrir loftslagið
Wagnerkrakkar
Myndasafn
Myndir
Kastali Bláskeggs
Mattheus ungi 2022
Óperuganga í Laugarnesskóla 2025
Fidelio 2021
Fidelio - atlaga að óperu 2021
Poppea Remixed 2016
Tónlistarverðlaunin 2019