Listafólk Óperudaga
Mótettukórinn
Kór
30"
:class="scrolled ? 'opacity-0 pointer-events-none' : 'opacity-100'">
Meira
Mótettukórinn var stofnaður af Herði Áskelssyni árið 1982 og hefur lengi verið meðal fremstu kóra landsins. Hann var upphaflega stofnaður sem kirkjukór Hallgrímskirkju en hefur síðustu ár starfað á eigin vegum. Kórinn kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og öðrum hljómsveitum. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur og má þar finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum, auk þess sem kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka. Stjórnandi kórsins er Stefan Sand.
Óperudagar 2026