Navaranaaq & Ólafs ríma Grænlendings
Grænland er landfræðilega næsti nágranni Íslands. Þrátt fyrir nálægðina hafa menningarleg samskipti milli Íslendinga og Grænlendinga ekki verið mikil. Ástæður þess eru ýmsar og má nefna tungumál, ólíkar hefðir og menningu. Bókmenntaleg tengsl milli þjóðanna tveggja hafa ennfremur verið lítil. Það er bæði brýnt og verðmætt að styrkja tengsl þessara nágrannaþjóða með menningarlegu samstarfi, sérstaklega í ljósi viðleitni Grænlands til að tryggja stöðu sína í samfélagi þjóðanna. Að dýpka þessi tengsl er markmið þessa verkefnis, sem leiðir saman tónskáld, skáld, þjóðlagatónlistarmenn, kóra, kórstjóra og þýðendur frá Grænlandi, Íslandi, Noregi og Danmörku.
Stefan Sand (Danmörk/Ísland), Nuka Alice (Grænland) og Rebekka Ingibjartsdóttir (Ísland/Noregur) tengja saman tvær þjóðsögur: norrænu söguna um Ólavík, eins og Einar Benediktsson túlkaði hana í Ólafs rímu Grænlendings og þjóðsöguna um Navaranaaq.
Tónleikadagskrá
Aassuutit - Nuka Alice
Mansöngur - Jórunn Viðar
Vísur Vatnsenda-Rósu - útsetning fyrir strengi eftir Tormod Tvete Vik
Med røde roser - Bjørn Kåre Odde
Navaranaaq & Ólafs ríma Grænlendings - Stefan Sand & Nuka Alice
Nuka Alice - Tónskáld og trommudansari
Stefan Sand - Tónskáld og stjórnandi
Rebekka Ingibjartsdóttir - Stjórnandi
Hugo Herrman - Stjórnandi
- - -
Mótettukórinn
Laffí Vokalensemble
Stúlknakór Reykjavíkur
Studenterorkesteret STRYK
Áætluð lengd: 70 mínútur, án hlés.