Langspilssmiðja Eyjólfs

Salurinn í Kópavogi · lau 21. okt kl. 13:00
Eyvi

Í langspilssmiðjunni læra þátttakendur undistöðuatriðin í langspilsleik, eins og stramm og plokk með álftafjöðrum. Einnig verður boðið upp á að strjúka strengina með hrosshársbogum. Því næst verða kennd vel valin lög úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar sem verða að lokum flutt við langspilsleik þátttakenda.  Langspil og önnur kennslugögn verða til staðar fyrir þátttakendur smiðjunnar.

Langsspilssmiðjan er hluti af viðburðaröðinni Fjölskyldustundir á laugardögum sem eru styrktir af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Aðgangur er ókeypis.

Þátttakendur

Styrktar- og samstarfsaðilar