Viðburður Óperudagar 2026

Er þetta allt og sumt?

Tjarnarbíó · mið 28. okt kl. 20:00
Is This It_  med tekst Lina Hindrum-kopi

ENDALOKIN ERU Í NÁND!

Er hægt að réttlæta það að elta draumana sína þegar heimsendir er á allra næsta leiti? Í Er þetta allt og sumt? fær Patrick Egersborg þá Rigoletto, Javert, Macbeth og Hollendinginn fljúgandi til liðs við sig til að svara þeirri spurningu.

Í örvæntingarfullri tilraun til að láta drauma sína rætast áður en heimurinn líður undir lok, fléttar Patrick ýmsum aríum úr nokkrum af stórvirkjum óperubókmenntanna saman við eigin texta í trylltri sýningu í kamikaze-stíl, fullri af svörtum húmor og sjálfsháði.

Í sýningunni tekst Patrick á við sameiginlegan heimsendakvíða okkar allra og notar verk á borð við Rigoletto, Manninn frá La Mancha, Macbeth og Hollendinginn fljúgandi sem spegil á samtímann – heim sem einkennist af stríði, skautun og loftslagshamförum. Sýningin byggir lauslega á reynslu Patricks sjálfs sem metnaðarfulls óperusöngvara sem reynir að fóta sig í heimi þar sem heimsendir virðist handan við hornið.

Uppsetningin var framleidd í samstarfi við Herning Opera Festivals em pantaði verkið eftir að brot úr því voru sýnd á Óperudögum í Reykjavík árið 2023. Sýningin var frumsýnd í Team Teatret í ágúst 2024 á Herning Opera Festival og síðar sýnd á Kulturmødet Mors. Patrick leitar nú eftir samstarfi við sýningarstaði í öðrum borgum Evrópu.

UMSAGNIR

„Tryllt og villt áhættuspil sem heppnaðist frábærlega.“

„Heillandi og fyndið, með beittum háðsádeilubroddi á tíðarandann.“

„Patrick er framúrskarandi barítón og eins og háfleyg eldflaug í sinni eigin hugmyndaríku uppfærslu“

Herning Folkeblad, ágúst 2024
Umsögn um frumsýningu IS THIS IT? í ágúst 2024.

Þátttakendur