ÓPERUDAGAR
Bárur - sýning fyrir leikskólabörn
Norræna húsið | þri, 18. okt 2022
Norræna húsið | fös, 21. okt 2022
Norræna húsið | lau, 22. okt 2022
Norræna húsið | lau, 22. okt 2022
Norræna húsið | sun, 23. okt 2022
Norræna húsið | sun, 23. okt 2022
Norræna húsið | mán, 24. okt 2022
Norræna húsið | þri, 25. okt 2022

Bárur - sýning fyrir leikskólabörn

Niður sjávar og vatns er aðalþema þessa verks sem er samið fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en norræn goðafræði svífur einnig yfir vötnum. Sagan er sögð af tónskáldinu, Svöfu Þórhallsdóttur, sem leiðir börnin í ævintýraheim og notar hún söguna til að skapa aðstæður þar sem börnin fá að taka þátt. Tónlistin skapar draumkennt andrúmsloft og í samspili við börnin myndast rými, þar sem þau ná að fóta sig og upplifa ævintýrið á eigin skinni.

Leikskólabörnum á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi, Garðabæ og Borgarbyggð verður boðið á sýningar á hátíðinni í samstarfi við sveitarfélögin.

Sýningarnar í Norræna húsinu þann 23. október eru klukkan 11:00 og 12:15 opnar börnum frá 1-5 ára og forráðamönnum/fylgdarfólki þeirra.

Aðgangur er ókeypis