27
Hrífandi og aðgengileg ópera um sögulegar ástir.
Í hjarta Parísar verður lítil stofa að suðupotti nýrrar listar. Óperan 27 segir hrífandi ástarsögu Gertrude Stein og Alice B. Toklas, tveggja kvenna sem sköpuðu heimili, samfélag og skjól fyrir helstu listamenn tuttugustu aldar. Þar hittast Picasso, Matisse og Hemingway áður en heimurinn þekkir nöfn þeirra – og innan veggjanna takast á ástríða, metnaður, vinátta og hugmyndir sem eiga eftir að breyta listasögunni. Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek flétta saman tónlist, húmor og hjartnæma sögusýn í aðgengilegri samtímaóperu um ástina sem lifir af stríð, átök og tímans þunga nið.
Uppsetningin er framleiðsla nýs íslensks óperukompanís sem heitir hinÓperan, en markmið þess er að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu. Sjá nánar á www.hinoperan.is
Óperan 27 er styrkt af Sviðslistasjóði.
Athugið að sýningin er á ensku.
Þátttakendur
-
Áslákur Ingvarssonbarítón
-
Bjarni SnæbjörnssonLeikstjóri
-
Bjarni Thor KristinssonBassasöngvari og leikstjóri
-
Cameron CorbettDansari
-
Eggert Reginn KjartanssonTenór
-
Herdís Anna JónasdóttirSópran
-
Hafsteinn ÞórólfssonBarítón
-
Íris Björk GunnarsdóttirSöngkona
-
Matthildur Anna GísladóttirPíanóleikari
Myndasafn
Myndir
27
Bjarni Snæbjörnsson