Cameron Corbett

Dansari

Carmeron Corbett

Cameron Corbett er fæddur í Portland í Oregon og hóf atvinnuferil sinn sem dansari aðeins átta ára gamall. Hann nam við Jefferson High School of the Performing Arts og University of North Carolina School of the Arts og dansaði síðar með Tanz-Forum Köln í Þýskalandi áður en hann flutti til Íslands árið 1997 til að ganga til liðs við Íslenska dansflokkinn.

Samhliða störfum sínum sem dansari hefur Cameron skapað fjölda verka fyrir Íslenska dansflokkinn, Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, tónlistarmyndbönd og sjálfstæða sviðslistahópa. Hann hefur einnig kennt við ýmsa dansskóla og Listaháskóla Íslands. 

Hann hefur margoft verið tilnefndur til Grímuverðlaunanna sem dansari og danshöfundur. Árið 2025 hlaut hann verðlaunin fyrir dans- og sviðshreyfingar í sýningunni Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu.

Auk þess að vera vinsæll kennari og danshöfundur starfar Cameron sem dragdrottningin Faye Knús.