ÓPERUDAGAR
Rebekka Ingibjartsdóttir

Listafólk Óperudaga

Rebekka Ingibjartsdóttir

Rebekka Ingibjartsdóttir er stjórnandi, söngvari og fiðluleikari búsett í Osló. Hún stjórnar þar fjórum kórum og sinnir fjölbreyttum verkefnum í tónlistarlífi borgarinnar. Hún hefur staðið fyrir verkefnum og námskeiðum sem gera kórsöng aðgengilegan bæði fyrir börn og fullorðna í Noregi sem og á Íslandi. Einnig er hún hluti af þjóðlagadúóinu Norðfólk sem fyrr á árinu gaf út sína fyrstu breiðskífu.

Rebekka er með fjögurra ára kandídats- og bakkalárgráðu í kórstjórnun frá Norska tónlistarháskólanum, sem og menntun í hljómsveitarstjórnun, söng og kennslufræðum frá sama skóla. Hún lauk bakkalárgráðu í tónvísindum frá Oslóarháskóla með viðkomu í Köln í Þýskalandi árið 2018.

Hún hefur stjórnað  söngflokknum Laffí frá árinu 2018. Kórinn samanstendur af íslendingum og norðmönnum með tengsl til Íslands og heldur til í Osló. Laffí flytur mikið af íslenskri tónlist, sérstaklega nýlegri tónlist. Á síðasta starfsári hélt kórinn tónleika þar sem einungis verk eftir íslenskar konur voru flutt, þar af flestar núlifandi.

Á óperudögum taka Rebekka og Söngflokkurinn Laffí þátt í verkefninu Navaranaaq þar sem íslensk, grænlensk og norsk tónlist verður í fókus. Rebekka stjórnar hluta af efnisskránni og leikur á fiðlu í einu verkinu.

Deila prófíl