Alexandra Chernyshova

Soprano

alexandra chernyshova mynd  .png

Alexandra Chernyshova - sópransöngkona og tónskáld. 

Hún var valin í hóp 10 framúrskarandi ungra Íslendinga árið 2014 fyrir framlag sitt til menningar á Íslandi. Árið 2020 fekk Alexandra menningarverðlaun Reykjanesbæjar. Hún lauk M.Mus gráðu frá Listaháskóla Íslands, M.Ed. frá Háskólanum í Kiev, meistaragráðu í óperusöng og söngkennaraprófi frá Odessa tónlistarakademíunni og  Kiev Glier High Music College og sömuleiðis BA frá National Kiev Linguistic University. Alexandra lauk 8 stigi í píanóleik frá Kiev Tónlistarskóla N1. Auk þess stundaði hún söngnám hjá Michael Trimble Opera Institute og Katja Ricciarelli Opera Academy, ljóða- og kammertónlist hjá Pr. Hanno Blascke sömuleiðis. Hún hóf feril sinn á sviði sem einsöngvari hjá Kiev Academical Musical Theater of Opera and Ballet. Alexandra söng með Kiev National Radio Orquestra, New York Contemporary Opera, auk þess sem hún hefur sungið sem einsöngvari með Óperu Skagafjarðar sem hún stofnaði árið 2006. Alexandra hefur sungið víða um Ísland, Evrópu, New York, í Kína og Japan. 

Hún hefur gefið út þrjá einsöngsdiska Alexandra soprano (2006), Draumur með rómantískum lögum eftir Sergei Rachmaninov við meðleik Jónasar Ingimundarssonar (2008) og You and only you (2011). Árið 2020 fékk fyrsta frumsamda ópera Alexöndru og Guðrúnar Ásmundsdóttur Skáldið og Biskupsdóttirin 1. sæti í alþjóðalegri tónskáldakeppni Isaak Dunajevskiy í Moskvu og lagið Ave María úr sömu óperu komst á topp tíu bestu í World Folk Vision alþjóðalegri tónlistarkeppni. Á þessu ári fékk óperuballet fyrir börn og fullorðna eftir Alexöndru Chernyshovu, Ævintýrið um norðurljósin, við handrit mömmu hennar, Evgeniu, Grand Prix í Art festival “Aurora” í Stokkhólmi. 

Sponsors and partners