Litið um öxl

Hannesarholt · sun 21. okt kl. 12:15
2018-09-30_13-09-57-4.jpg

Ástríður Alda og Bjarni Thor kíkja í gamlar tónleikaskrár og setja saman efnisskrá úr vel völdum aríum og lögum sem þau hafa áður flutt á tónleikum.

Bjarna Thor þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónlistarunnendum en hann hefur átt mikilli velgengni að fagna á erlendum óperusviðum. Hann hóf söngferil sinn í Vín og eftir að hafa starfað þar fastráðinn, syngur hann í lausamennsku við mörg stærstu óperuhús Evrópu, m.a. Berlín, París, Feneyjar, Verona, Róm, Lissabon, Barcelona, Amsterdam, Hamborg og München.

Eftir tónleikana gefst tónleikagestum kostur á að hlýða á stutt spjall við Bjarna þar sem fulltrúi Óperudaga forvitnast um nýjasta ævintýri hans í Kassel og hægt verður að spyrja hann spjörunum úr.


Miðar fást á tix.is

Þátttakendur

bassasöngvari og leikstjóri

Styrktar- og samstarfsaðilar