Bárur - sýning fyrir leikskólabörn

Garðabær · þri 18. okt
Leikskólanum Hofi · fös 21. okt kl. 12:30
Selfoss · lau 22. okt kl. 10:30
Selfoss · lau 22. okt kl. 11:30
Norræna Húsið · sun 23. okt kl. 11:00
Norræna húsið · sun 23. okt kl. 12:15
Borgarbyggð · mán 24. okt kl. 10:00
Garðabær · þri 25. okt kl. 9:00
Bárur

Niður sjávar og vatns er aðalþema þessa verks sem er samið fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en norræn goðafræði svífur einnig yfir vötnum. Sagan er sögð af tónskáldinu, Svöfu Þórhallsdóttur, sem leiðir börnin í ævintýraheim og notar hún söguna til að skapa aðstæður þar sem börnin fá að taka þátt. Tónlistin skapar draumkennt andrúmsloft og í samspili við börnin myndast rými, þar sem þau ná að fóta sig og upplifa ævintýrið á eigin skinni.

Leikskólabörnum á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi, Garðabæ og Borgarbyggð verður boðið á sýningar á hátíðinni í samstarfi við sveitarfélögin.

Sýningarnar í Norræna húsinu þann 23. október eru klukkan 11:00 og 12:15 opnar börnum frá 1-5 ára og forráðamönnum/fylgdarfólki þeirra.

Aðgangur er ókeypis

Þátttakendur

söngkona og tónskáld
harmóníkkuleikari
flautuleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar