Tumi fer til tunglsins

Norðurljós, Harpa · sun 27. okt kl. 11:00
Norðurljós, Harpa · sun 27. okt kl. 12:15
kubbur 800 x 600 (1) (1)

Tónlistarævintýri eftir Jóhann G. Jóhannsson


Sýningartími: 40 mínútur


Aðgangur er ókeypis
Sýningarnar eru hluti af Fjölskyldudagskrá Hörpu

Sýningartímar: 11:00 og 12:15

Tumi litli getur ekki sofnað. Hann þiggur boð karlsins í tunglinu um að skreppa til hans „á góðra vina fund“ og svífur af stað í rúminu sínu út í vornóttina. Á vegi hans verða forvitnir fuglar, lífsreyndir regndropar, börn frá öllum heimshornum og sjálfur karlinn í tunglinu sem hefur lengi gefið jarðarbúum gætur og á nú mikilvægt erindi við börnin. Þessari ótrúlegu ævintýraferð eru hér gerð skil í tali og tónum í léttum stíl um leið og myndum er varpað á tjald til áhrifsauka.

Höfundur tónlistar og texta: Jóhann G. Jóhannsson
Myndhöfundur: Lilja Cardew

Flytjendur: 

Sigrún Edda Björnsdóttir – sögumaður
Oddur Arnþór Jónsson – Karlinn í tunglinu
Gunnar Erik Snorrason – Tumi
Aurora - Stúlknakór Reykjavíkur – þrestir, dropar, börn

Kristín Ýr Jónsdóttir – flauta
Sigurður Flosason – saxófónn, klarinett
Bryndís Pálsdóttir – fiðla
Steiney Sigurðardóttir – selló
Birgir Steinn Theodórsson – kontrabassi
Jóhann G. Jóhannsson – píanó
Pétur Grétarsson – víbrafónn, trommur, slagverk 

Stjórnandi:  Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

Kórstjórar:  Björg Birgisdóttir, Margrét J. Pálmadóttir, Matthildur Hafliðadóttir og Sigríður Soffía Hafliðadóttir

Stuðnings- og styrktaraðilar:

Barnamenningarsjóður
Bókabeitan - bókaforlag
Domus Vox - sönghús
Harpa
Óperudagar
Sviðslistasjóður
Tónlistarsjóður
Tónskáldasjóður RÚV og STEFs

Þátttakendur

höfundur tónlistar og texta og píanóleikari
myndhönnuður
karlinn í tunglinu
fiðluleikari
saxófónn

Styrktar- og samstarfsaðilar