ÓPERUDAGAR
Ljóð fyrir framtíðina
Harpa – Norðurljós | lau, 31. okt kl. 11:00

Ljóð fyrir framtíðina

Þann 31. október næstkomandi bjóða Óperudagar upp á fjölskylduviðburð á Óperudögum í samstarfi við Hörpa tónlistar- og ráðstefnuhús. Barnakórar flytja ný verk eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Gísla Jóhann Grétarsson og norræn tónskáld við ljóð barna. Kvartett Óperudaga syngur Ljóð fyrir loftslagið eftir Helga R. Ingvarsson og börn lesa upp eigin ljóð og myndverkum þeirra verður varpað upp á skjá meðan á tónlistarflutningnum stendur. Listahópurinn Húmat mun einnig taka þátt og flytja lög á íslensku og farsi.

Allir krakkar geta sent okkur ljóð og myndverk í gegnum síðuna okkar. Við leitum sérstaklega að ljóðum og listaverkum sem fjalla um framtíðina, drauma, náttúruna, loftslagið og umhverfið. Hugmyndin er að nota sum ljóðanna og listaverkanna til að semja ný tónverk við og sýna á viðburðinum í Norðurljósum! Öll ljóðin og myndverkin sem berast verða auk þess birt á heimasíðu verkefnisins!

Myndasafn

Myndir

1000077311

1000077311