Eva Þyri Hilmarsdóttir

píanóleikari

EÞH2018_Svarthvít

Að loknum prófum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík stundaði Eva Þyri nám við Det Jyske Musikkonservatorium í Árósum, Danmörku, og lauk þaðan einleikaraprófi. Að því loknu nam hún við The Royal Academy of Music í London, en þaðan útskrifaðist hún með hæstu einkunn í MA námi í meðleik, hlaut heiðursnafnbótina DipRAM og The Christian Carpenter Piano Prize fyrir framúrskarandi lokatónleika. Helstu kennarar hennar voru Þorsteinn Gauti Sigurðsson, Halldór Haraldsson, John Damgård og Michael Dussek.

Auk fjölda einleikstónleika hefur Eva Þyri komið fram sem einleikari með hljómsveit og tekið þátt í frumflutningi fjölmargra íslenskra og erlendra verka á hátíðum innan lands sem utan.

Undanfarin ár hefur hún lagt mikla áherslu á flutning ljóðasöngs og kammertónlistar og kom m.a. fram á rúmlega hundrað tónleikum tileinkuðum íslenskum sönglögum í Hörpu, í tónleikaseríunni Pearls of Icelandic Song og var í listrænu teymi tónleikaraðarinnar „Ár íslenska einsöngslagsins“ sem fram fór í Salnum í Kópavogi 2022-2023. Einnig var hún annar stofnenda ljóðatónlistarhátíðarinnar „Ljóðið lifi“ sem fram fór í Hannesarholti vorin 2023 og 2024.

Eva Þyri tók þátt í uppsetningu Íslensku óperunnar 2017 á Mannsröddinni eftir Poulenc og í desember 2018 gaf hún, ásamt Erlu Dóru Vogler, út geisladisk með sönglögum Jórunnar Viðar í tilefni 100 ára afmælis hennar, en diskurinn hlaut tilnefningu til tónlistarverðlaunanna sem plata ársins 2018.

Á næstu mánuðum kemur út platan „Faldir fjársjóðir“ sem hefur að geyma lög og ljóð eftir íslenskar konur, Bryndís Guðjónsdóttir sópran syngur. Eva Þyri mun einnig endurtaka Mannsröddina eftir Poulenc með Kristínu E. Mantyla á Óperudögum í október, en hún var frumflutt á Seiglu í sumar við gríðargóðar undirtektir. Leikstjóri er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir.

https://www.youtube.com/channel/UC8-JeJaKhy7O6dNeECZTG9g