Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

sópran og hljómsveitarstjóri

RagnheidurIngunnJohannsdottir_7052_web_credit_DominikFalenski (1)

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir (f. 2000) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2021 með tvöfalda bakkalársgráðu í fiðluleik og söng með hljómsveitarstjórn sem aukafag. Vorið 2023 lauk hún meistaranámi í söng við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi og sumarið 2024 útskrifaðist hún úr alþjóðlegu Malko hljómsveitarstjóraakademíunni í Kaupmannahöfn. Á útskriftartónleikunum stjórnaði hún Dönsku þjóðarhljómsveitinni í 4. sinfóníu Mahlers.

Ragnheiður söng og stjórnaði kammersveit á tónleikunum „Hvað syngur í stjórnandanum?“ á Óperudögum 2022 og frumflutti þrjú verk, samin fyrir tilefnið. Hún hljóðritaði svo tvö verkanna með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2024. Hún vann söngkeppnina Vox Domini vorið 2022, söng einsöngshlutverkið í 4. sinfóníu Mahlers með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins í mars 2023 og kom fram á tónleikunum Ungir einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í maí 2023.

Sem fiðluleikari hefur hún leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit MÍT, gegnt stöðu konsertmeistara Ungsveitar SÍ, Ungfóníunnar og Sinfóníuhljómsveitar MÍT og leikið í Orkester Norden og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ragnheiður var valin „bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023.

Mynd: Dominik Falenski, DR

Styrktar- og samstarfsaðilar