Horfðu á tónlistina! 2022

Norræna húsið · fös 28. okt kl. 18:00
look_web

Táknaðir og raddsungnir kórtónleikar

Kæmi það þér á óvart ef við segðum þér að heyrnarlaust og heyrnarskert fólk nyti tónlistar og semdi sína eigin? Að með táknmáli sé hægt að búa til nýjar gerðir ljóðlistar? Hvað myndi gerast ef við blönduðum þeim saman við tónlistina sem við þekkjum?

Við erum tveir nemar, einn í tónlist og annar í málvísindum. Yfir sumarið höfum við sett saman verkefni og boðið fólki með mismunandi bakgrunn og lífsreynslu að taka þátt í því; heyrnarlausu fólki, heyrnarskertu fólki, CODA-börnum, fólki sem er táknmálstalandi, fólki sem kann ekki táknmál, tónlistarfólki. Saman komum við með hugmynd að tónlistartjáningu sem allir geta notið þar sem enginn er skilinn útundan.

Íslenskt táknmál (ÍTM) verður í forgrunni á þessum tónleikum og í stað þess að þýða texta heyrandi tónlistarfólks sömdum við tónlist út frá táknmálsverkum. Uppgötvaðu tónlist sem þú sérð og finnur fyrir ásamt því að heyra hana; þar sem rödd og hendur vinna saman til að skapa merkingu og mynda tengsl milli fólks; uppgötvaðu hvernig táknmál og raddmál mynda eina heild og hvernig lífsreynsla einhvers annars getur auðgað þína eigin.

Komdu og taktu þátt í einstakri tilraun til að kanna nýjar leiðir til að skapa og njóta tónlistar.

MIÐASALA

Þátttakendur

kórstjóri
leikstjóri
táknmálsskáld
einleikari á táknmáli

Styrktar- og samstarfsaðilar