Pierrot lunaire

Norðurljós, Harpa · lau 2. nóv kl. 19:00
RagnheidurIngunnJohannsdottir_8210_web_credit_DominikFalenski

Miðasala fyrir staka miða

Dagpassi fyrir 2. nóvember

Ragnheiður Ingunn kom fram sem syngjandi hljómsveitarstjóri á Óperudögum 2022 á tónleikunum „Hvað syngur í stjórnandanum?“ og var í kjölfarið valin „Bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi“ á Íslensku tónlistarverðlaununum. Nú snýr hún aftur sem söngkona og stjórnandi í verki Schönbergs, Pierrot lunaire, ásamt kvintett skipuðum Rannveigu Mörtu Sarc fiðluleikara, Steineyju Sigurðardóttur sellóleikara, Kristínu Ýri Jónsdóttur flautuleikara, Rúnari Óskarssyni klarinettleikara og Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara. Á tónleikunum verður ennfremur frumflutt stutt kammerverk Jóhanns G. Jóhannssonar við ljóð Þorvaldar Þorsteinssonar, Kall. Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson bætist þá í hópinn sem ljóðmælandi.

Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum 2. nóvember 2024 á Óperudögum.

„Pierrot lunaire“ er eitt af þekktustu verkum Arnolds Schönbergs, samið 1912 og tekur um 40 mínútur í flutningi. Verkið er samið við ljóðaflokk belgíska ljóðskáldsins Alberts Giraud í þýskri þýðingu eftir Hartleben, og skiptist eins og textinn í þrjá kafla, sem hver um sig er í sjö stuttum þáttum. Verkið verður nú flutt á íslensku í fyrsta sinn, í glænýrri þýðingu Jóhanns G. Jóhannssonar.

Í verkinu er ljóðið flutt af söngkonu sem iðulega þarf að feta vandrataða braut milli söngs og tals (‘sprechstimme’). Verkið gerir miklar kröfur til flytjendanna, fiðluleikarinn bregður fyrir sig víólu, flautuleikarinn pikkólóflautu og klarínettleikarinn bassaklarínetti.

Efnisskrá:

Kall eftir Jóhann G. Jóhannsson við ljóð Þorvaldar Þorsteinssonar

Pierrot lunaire eftir Arnold Schönberg við ljóð Giraud í þýðingu Jóhanns G. Jóhannssonar

Tónleikarnir eru styrktir af:

Sviðslistarsjóði óperuverkefna

Tónlistarsjóði

Borgarsjóði Reykjavíkur

Samfélagssjóði Landsbankans

Ýli, tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk

Óperudögum

Mynd: Dominik Falenski, DR

Þátttakendur

söngkona og stjórnandi
fiðluleikari
klarinett
tónskáld og þýðandi

Styrktar- og samstarfsaðilar