Pierrot lunaire

Norðurljós, Harpa · lau 2. nóv
RagnheidurIngunnJohannsdottir_8210_web_credit_DominikFalenski

Ragnheiður Ingunn kom fram sem syngjandi hljómsveitarstjóri á Óperudögum 2022 á tónleikunum „Hvað syngur í stjórnandanum?“ og var valin „Bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi“ á Íslensku tónlistarverðlaununum síðasta vor. Nú snýr hún aftur sem söngkona og hljómsveitarstjóri í verki Schönbergs, Pierrot lunaire, ásamt kvintett skipuðum Rannveigu Mörtu Sarc fiðluleikara, Steineyju Sigurðardóttur sellóleikara, Kristínu Ýri Jónsdóttur flautuleikara, Rúnari Óskarssyni klarinettleikara og Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum 2. nóvember 2024 á Óperudögum.

„Pierrot lunaire“ er eitt af þekktustu verkum Arnolds Schönbergs, samið 1912 og tekur um 40 mínútur í flutningi. Verkið er samið við ljóðaflokk belgíska ljóðskáldsins Alberts Giraud í þýskri þýðingu eftir Hartleben, og skiptist eins og textinn í þrjá kafla, sem hver um sig er í sjö stuttum þáttum. Verkið verður nú flutt á íslensku í fyrsta sinn, í glænýrri þýðingu Jóhanns G. Jóhannssonar.

Í verkinu er ljóðið flutt af söngkonu sem iðulega þarf að feta vandrataða braut milli söngs og tals (‘sprechstimme’). Verkið gerir miklar kröfur til flytjendanna, fiðluleikarinn þarf að bregða fyrir sig víólu, flautuleikarinn pikkólóflautu og klarínettleikarinn bassaklarínetti. Oftast er verkinu stýrt af hljómsveitarstjóra en við þessa uppfærslu mun einsöngvarinn líka gegna hlutverki hljómsveitarstjórans. Verkið þótti á sínum tíma afar framsækið, tónmálið er ‘atónalt’ þótt tónskáldið bregði af og til á leik með canon, fúgú, rondó og passacaglíu, en til tólf-tónatækninnar grípur Schönberg þó ekki að heitið geti fyrr en áratug eftir að þetta verk leit dagsins ljós.

Á tónleikunum mun Ragnheiður ennfremur stýra frumflutningi nýs kammerverks Jóhanns G. Jóhannssonar við ljóð Þorvaldar Þorsteinssonar, Kall, en hljóðfæraskipan verksins er sú sama og í Pierrot lunaire. Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson bætist þá í hópinn sem ljóðmælandi.

Efnisskrá:

Kall eftir Jóhann G. Jóhannsson við ljóð Þorvaldar Þorsteinssonar

Pierrot lunaire eftir Arnold Schönberg við ljóð Giraud í þýðingu Jóhanns G. Jóhannssonar

Tónleikarnir eru styrktir af:

Sviðslistarsjóði óperuverkefna

Tónlistarsjóði

Borgarsjóði Reykjavíkur

Samfélagssjóði Landsbankans

Ýli, tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk

Óperudögum

Mynd: Dominik Falenski, DR

Þátttakendur

söngkona og stjórnandi
fiðluleikari
klarinett
tónskáld og þýðandi