Áslákur Ingvarsson
barítón

Áslákur Ingvarsson lauk bakkalárnámi af söngbraut tónlistardeildar Listaháskóla Íslands vorið 2021 og postgraduate námi úr söngdeild Konunglegu konservatóríunnar í Antwerpen haustið 2022.
Nýverið söng hann hlutverk Il Commendatore í uppfærslu Konunglegu konservatóríunnar í Antwerpen á Don Giovanni eftir Mozart og hlutverk Marcello í uppfærslu La Musica Lirica á La Boheme eftir Puccini.
Í vetur mun Áslákur fara með hlutverk Dr. Malatesta í uppsetningu Sviðslistahópsins Óðs á óperunni Don Pasquale eftir Donizetti sem sýnd verður í Þjóðleikhúskjallaranum.
Áslákur hlaut fyrstu verðlaun í háskólaflokki í söngkeppni Vox Domini árið 2020 og viðurkenningu Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi námsárangur árið 2021.