Skemmtilegt er myrkrið

Kaldalón, Hörpu · lau 29. okt kl. 13:00
Kaldalón, Hörpu · lau 29. okt kl. 15:00
Kaldalón, Hörpu · lau 12. nóv kl. 13:00
Kaldalón, Hörpu · lau 12. nóv kl. 15:00
Skemmtilegt er myrkrið - mynd

Skemmtilegt er myrkrið er sprellfjörugt tónleikhús fyrir börn á aldrinum 4-99 ára. Sagan segir frá Ásu Signýju sem kemur oft við hjá Jóni Árna frænda sínum á leið heim úr skólanum. Einn daginn kemur hún hlaupandi inn og segir Jóni Árna að hún hafi séð loftanda. Jón Árni og hún fara í framhaldi af því að velta því fyrir sér hvort loftandinn geti verið til í raun og veru. Ása Signý er trúir ekki alveg á yfirnáttúrulega hluti, þó svo hún trúi á loftanda! Fljótlega fara þó ýmsir kynlegir hlutir að gerast, draugar sveima um og nykur hleypur yfir sviðið. Þetta fær Ásu Signýju til að efast enn meira um hvað er til í raun og veru. Tónlistin er viðamikil í verkinu og heyra má leikið á nokkur hljóðfæri sem sjaldan heyrist í á sviði eins og langspil, dótapíanó, sleifar, potta, kökudósir og skeiðar. Textar sönglaganna eru gamlar íslenskar vísur og kvæði. Texti lokalagsins er eftir Þórarin Eldjárn og sérstaklega saminn fyrir þetta verk.

Tónleikhúshópurinn Töfrar setur verkið upp með Elínu Gunnlaugsdóttir í forsvari.
Verkefnið er styrkt af Sviðslistasjóði og launasjóði sviðslistafólks og í samstarfi við Listdansskóla Íslands, Töfrahurð og Óperudaga 2022.

MIÐASALA

Þátttakendur

danshöfundur
leikmynd- og búningahönnuður
slagverksleikari
ljósahönnuður
sellóleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar