Krakkaganga
Krakkaganga er óperuganga fyrir krakka, 12 ára og yngri, og foreldra/forráðamenn. Hún hefst fyrir utan Gerðarsafn en þaðan verður hópurinn leiddur á milli staða í hjarta Kópavogs. Búast má við ýmsum uppákomum þar sem persónur úr óperubókmenntunum koma við sögu. Krakkagangan tekur rétt rúmlega klukkutíma.
Ókeypis er inn á alla viðburði nema hádegistónleikana en vegna takmarkaðs miðaframboðs er mælt með að áhugasamir tryggi sér miða með því að senda tölvupóst á operudagar@operudagar.is ásamt nafni, síma og fjölda miða sem óskað er eftir.
Öllum er velkomið að mæta á staðinn án þess að hafa pantað miða en þá er ekki hægt að tryggja að enn séu til lausir miðar.
Þátttakendur
-
BBarnakór LItla óperukompanísins
-
Lilja Margrét RiedelSópran
-
Guðrún Dalía SalómonsdóttirPíanóleikari
-
Einar Þór GuðmundssonBarítón
-
Fjóla Kristín NikulásdóttirSópran
-
Jón Svavar JósefssonBarítón
-
Þórgunnur Anna ÖrnólfsdóttirSöngkona
-
Alexander Jarl ÞorsteinssonTenór
-
Hugi JónssonBarítón
-
Helgi Rafn IngvarssonTónskáld og tónlistarstjóri
-
Elfur Sunna BaldursdóttirMezzósópran
-
Þórhallur Auður HelgasonTenór
-
Pétur Oddbergur HeimissonBass-barítón
-
Ragnheiður ÓladóttirSópran
-
Meðlimir úr Skólakór KársnessBarnakór