Harpa syngur - Lokahátíð 2022

Harpa · lau 5. nóv kl. 13:00
egg_webb

Lokahátíð Óperudaga 2022

Óperudögum í Reykjavík lýkur með pompi og prakt í Eldborg í Hörpu þann 5. nóvember. Fjölbreyttir viðburðir eru í boði frá hádegi til kvölds.

Hægt er að kaupa dagspassa sem gildir fyrir viðburðina kl. 13-19, kvöldpassa fyrir viðburðina frá kl. 18 og svo passa sem gildir bæði fyrir dag- og kvölddagskrá. Ókeypis er fyrir börn, 12 ára og yngri, á dagskrána frá klukkan 13-19 og þurfa þau ekki að mæta með miða.

MIÐASALA

Dagskrá:

12:45 Söngkvartett eftir Ásbjörgu Jónsdóttur í Hörpuhorni

13:00 Opnun lokahátíðar og fjölskyldudagskrá - Gradualekórinn flytur sænsk og íslensk ljóð fyrir barnakór við ljóð fyrir loftslagið eftir íslensk og norræn börn - söngkvartett syngur Plast er drasl og fleiri ljóð eftir Helga Rafn Ingvarsson. Eyjólfur Eyjólfsson, Ragnheiður Gröndal og börn úr Flóaskóla flytja tónlist á langspil í verkefninu Fab Lab-langspil.

14:00 Síminn - ópera fyrir áhrifavalda - glæný útfærsla þessarar snörpu og skemmtilegu óperu um samband Ben við Lúsí - og símann hennar! Flytjendur: Hallveig Rúnarsdóttir, Áslákur Ingvarsson og hljómsveit Óperudaga undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Höfundur: Gian Carlo Menotti, íslensk þýðing: Bragi Valdimar Skúlason. Leikstjóri: Pálína Jónsdóttir.

  • Stutt hlé

15:00 Mattheus ungi - Mattheus ungi er stutt leikræn aðlögun, unnin upp úr Mattheusarpassíu Bachs, með því markmiði að kynna verkið fyrir nýjum áheyrendum frá 8 ára aldri og leyfa þeim sem til þekkja að uppgötva verkið upp á nýtt. Tveir leikarar kynna söguþráðinn og fimm einsöngvarar, þrír hljóðfæraleikarar, kór og kórstjóri flytja suma fegurstu kaflana úr passíunni.

  • Stutt hlé

16:30 Úkraínsk söngstund - Nemendur úr Listaháskóla Íslands og Söngskóla Sigurðar Demetz flytja úkraínsk söngljóð í Eldborg, Hörpu og syngja mörg hver í fyrsta sinn á stóra sviðinu. Aðstoð við framburð fá þau frá einstaklingum úr úkraínskra samfélaginu á Íslandi.

17:00 Kórastuð! -

  • Horfðu á tónlistina! (Stefan Sand Groves, Thomas Hammel, Haukur Darri Hauksson)
  • Vox Feminae
  • KYRJA
  • Kvennakórinn Katla

18:00 Hvað syngur í stjórnandanum? - Sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir frumflytur þrjú íslensk tónverk fyrir syngjandi stjórnanda með tólf manna kammersveit.

19:00 Síminn - ópera fyrir áhrifavalda - eftir Gian Carlo Menotti í íslenskri þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar og í leikstjórn Pálínu Jónsdóttur. Hallveig Rúnarsdóttir og Áslákur Ingvarsson fara með hlutverk Lúsíar og Bens og hljómsveit Óperudaga leikur, undir stjórn Steinars Loga Helgasonar.

19:30 Hlé

20:30 ÓPERUPARTÝ - Gestgjafi kvöldsins, Bjarni Thor Kristinsson, bassasöngvari, hristir óvænta og skemmtilega óperugjörninga og -senur fram úr erminni og nýtur liðsinnis sumra af fremstu söngvurum og hljóðfæraleikurum landsins.

21:30 Hlé

22:00 ÓPERUPARTÝ

Þátttakendur

leikstjóri
baritónn
klarínettleikari
bassasöngvari og leikstjóri
fiðluleikari
fagottleikari
trompetleikari
hönnuður og framleiðandi
sellóleikari
listrænn stjórnandi og söngkona
fiðluleikari
saxafónleikari
hátíðarkór
píanisti
slagverksleikari
píanóleikari
leik- og söngkona
mezzósópran
óbóleikari
mezzósópran
kórstjórnandi, organisti, píanisti
sópran og hljómsveitarstjóri
fiðluleikari
tónskáld og stjórnandi
hljómsveitarstjóri
verkefnastjóri og söngkona
kvennakór
bass-baritón
kontrabassaleikari

Styrktar- og samstarfsaðilar